Alexandra K. Hafsteinsdóttir, MS nemi í jarðfræði við Háskóla Íslands, hlaut í vikunni Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið Kortlagning grunnvatns á Reykjanesskaga.

Verkefnið var unnið hjá Íslenskum orkurannsóknum og í samstarfi við vísindamenn Háskóla Íslands. Markmið þess var að kortleggja grunnvatnsstrauma á Reykjanesskaga með leiðni- og efnagreiningum, samhliða þróun nýrrar, rafknúinnar vatnsdælu sem auðveldar sýnatöku úr grunnum ferskvatnsholum.

Niðurstöðurnar sýna skýr skil milli vatnasvæða og eru í góðu samræmi við fyrri rannsóknir. Jafnframt var fylgst með mögulegum áhrifum eldgoss í Sundhnúkagígaröðinni, en niðurstöður benda ekki til marktækra breytinga á efnasamsetningu grunnvatnsins.

Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi verkefni styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2025.

Við óskum Alexöndru til hamingju með viðurkenninguna.

Nánari upplýsingar um verkefnið og verðlaunin má finna hér  

 

Alexandra K. Hafsteinsdóttir ásamt Höllu Tómasdóttur
Alexandra K. Hafsteinsdóttir ásamt Höllu Tómasdóttur á Bessastöðum
Share