Header Paragraph

Eldgos við Sundhnúk - útbreiðsla og rúmmál hrauns - samantekt til og með 30. apríl 2024

Image
Litli-Hrútur 11. júlí 2023
Image
Eldgos í Sundhnúksgígum 2024 - Graf 2024-04-30

Eins og í fyrri eldgosum á Reykjanesskaga hefur verið fylgst reglulega með hraunflæði í gosinu sem hófst á Sundhnúkssprungunni þann 16. mars.  Gosið hefur nú staðið í sjö og hálfa viku og er það lengsta sem komið hefur eftir að gaus í Fagradalsfjalli 2021. 

Reglulega hefur útbreiðsla og rúmmál hraunsins verið mælt með loftmyndatöku úr flugvél Garðafugs eða gervitunglum.  Þessi vinna hefur verið unnin í samvinnu Náttúrufræðistofnunar, Landmælinga, Veðurstofunnar, Almannavarna og Jarðvísindastofnunar, auk þess sem erlendir aðilar sem standa að Pleiades gervitunglunum hafa lagt til gögn.  Þá er einnig notuð kortlagning  Verkfræðistofunnar Eflu frá 4. apríl.

Gosið hófst kl. 20:23 að kvöldi laugardagsins 16. mars.  Þyrla Landhelgisgæslunnar fór tvö flug þetta kvöld þar sem stærð gossins og útbreiðsla hraunsins var metin út frá ljósmyndum og sjónmati.  Með þessari aðferð fæst mat á hraunrennsli fyrstu klukkustundirnar, þegar það er í hámarki en áður en aðstæður leyfa loftmyndaflug eða að myndir séu teknar úr gervitunglum. 

Niðurstöðurnar benda til þess að hraunflæði fyrsta klukkutímann hafi verið 1100-1200 m3/s en síðan hafi dregið hratt úr, og það verið komið niður í ca. 100 m3/s eftir 6-8 klukkustundir.  Áfram dró úr hraunrennsli og  var meðaltalið 17.-20. mars um 15 m3/s.  Fyrri hluta apríl var það 3-4 m3/s, og mælingarnar benda til þess að það hafi verið um eða innan við 1 m3/s síðustu tvær vikurnar. 

Flatarmálið náði tæpum 6 km2 strax þann 17. mars hefur lítið aukist síðan, er nú um 6,2 km2.  Rúmmálið er talið 34 millj. rúmmetrar, sem gæti samsvarað um 30 millj. rúmmetrum af þéttu bergi.  Þetta er um þrefalt stærra en gosin í desember og febrúar, en enn sem komið er miklu minna en það sem kom upp í Fagradalsfjalli 2021. 

Athugið að reikna má með að eðlismassi hraunsins fyrstu tímana hafi verið lægri en seinna varð, vegna gasinnihalds.  Rennslistölurnar gefa eigi að síður góða mynd af rúmflæðinu á hverjum tíma.

 

Efni: 

Náttúrufræðistofnun Íslands; Birgir Vilhelm Óskarsson, Rob Askew.

Landmælingar Íslands:  Joaquin Belart, Sidney Gunnarson

Jarðvísindastofnun Háskólans:  Magnús Tumi Guðmundsson, Þórdís Högnadóttir, Gro B.M. Pedersen

Almannavarnir:  Björn Oddsson