Grímsvötn 2011

Myndir frá Grímsvatnagosinu 2011. Myndirnar sýna gosmekk rísa upp yfir gosstöðvunum 21. maí 2011, þar sem ljósbrúnt neðra lag og þykkur grár mökkur ofan við einkenna sprengivirkni gossins (vinstri), og ketillinn og gíganna þann 30. maí 2011, tveimur dögum eftir goslok (hægri).

Gosið í Grímsvötnum (21.-27.5.2022) var miklu stærra en þau gos sem hafa orðið í Grímsvötnum á síðustu 150 árum. Þetta var sprengigos sem og olli miklu gjóskufalli. Gosmökkurinn lagðist til suðurs og hálfrökkur og jafnvel myrkur var í um tvo sólarhringa á Síðu og í Meðallandi, 22.-23.  maí. Verulega dró úr gosinu þegar frá leið og því lauk 28. maí. Það kom upp í suðvesturhorni Grímsvatna, á sama stað og gosið 2004. Gosmökkurinn náði í um 20 km hæð og var goskúfurinn sem myndaði efri hluta makkarins mjög víðáttumikill framan á, um eða yfir 50 km í þvermál. Mikið gjóskufall varð á suðurhluta Vatnajökuls og töluvert í Vestur-Skaftafellssýslu. Magn gjóskunnar er talið hafa verið 0,6-0,8 rúmkílómetrar og þarf að fara aftur til Kötlugossins 1918 til að finna stærra gjóskugos hér á landi. Þakka má fjarlægt Grímsvatna frá byggð (50-60 km) að skemmdir vegna goss voru tiltölulega litlar. Þykkt gjósku á Háubungu í Vatnajökli, um 7 km sunnan gígsins, var um 140 cm, niðri í byggð í Fljótshverfi um 5 cm en 1-2 cm vestar, á Síðu og í Meðallandi. Þetta gos var margfalt stærra en gosin 1998 og 2004, en sennilega svipað að stærð og Grímsvatnagosið 1873.

Ketillinn sem varð til í gosinu var um 1600 m langur og 750 m breiður þar sem mest var, um miðbikið. Gjóskuþykkt á börmunum skipti tugum metra sunnan megin, en var heldur minni norðan megin. Þegar gosið hófst var íslaust þar sem gígurinn var 2004, en jökullinn var 150-200 m þykkur nærri vestur og austurenda gossprungunnar.

Nánari upplýsingar um eldgos í Grímsvötnum/eldstöðvakerfi Grímsvatna er að finna á Íslensku eldfjallavefsjánni: https://islenskeldfjoll.is/?volcano=GRV#

logo
Share