Við (Náttúrufræðistofnun, Háskóli Íslands og Sjávarklasinn) viljum bjóða þér á fyrsta Notendaþing Hafþjónustu Copernicus á Íslandi, sem fer fram 19. febrúar 2026 í Grandagarði 16 í Reykjavík.
Viltu eða eitthvað nemenda frá þér vera með á þessi viðburð? Það er líka gott tækifæri til að mynda tengslanet fyrir nemendur.
Notendaþing hefst með ókeypis standandi hádegisverði, þar sem þátttakendur geta hist og kynnst áður en Copernicus Marine og notkun þess á Íslandi verður kynnt. Svo verður fræðsla sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum, þar sem þátttakendur læra að nota MyOceanViewer til að nálgast gögn um hafið.
Að lokum verður opin og virk umræða, þar sem þú getur skipst á hugmyndum við aðra notendur og komið á framfæri ábendingum um staðbundnar þarfir og tækifæri. Þessar ábendingar verða sendar til Copernicus Marine með það að markmiði að bæta þjónustuna fyrir Ísland í framtíðinni.
Notaðu tækifærið til að læra hvað Copernicus Marine getur gert fyrir þig og segðu okkur frá þínum þörfum, svo við getum betur unnið saman sem notendur.
Að fundi loknum verður boðið upp á drykki og léttar veitingar, þar sem hægt er að halda áfram samtölum og tengslamyndun.
Viðburðurinn hentar bæði byrjendum og reyndum notendum og er ætlaður til að efla tengslanetið og gefa notendum rödd varðandi þarfir sínar og notkunartilvik.
Hvort sem þú starfar hjá hinu opinbera, í einkageiranum, ert nemi eða sjálfstæður notandi, þá hvetjum við þig til að taka þátt í Copernicus Marine notendafundinum á Íslandi 19. febrúar.
Skráðu þig hér til að hjálpa okkur að skipuleggja viðburðinn sem best:
Viðburðurinn verður streymdur, þannig að hægt er að fylgjast með honum í beinni, þó án virkrar þátttöku.
Hér má sjá dagskrána í heild sinni: