
24. júlí 2023
Í gær, 23. júlí, tókst að fljúga loftmyndaflug yfir hraunið við Litla-Hrút.
Mælingar á hraunflæði (23. júlí)
Myndir náðust úr TF-CAD eftir hádegi í gær. Náttúrufræðistofnun vann landlíkan úr myndunum. Mælingarnar sýna að meðalhraunrennsli síðustu fimm daga (18.-23. júlí) var um 8,0 m3/s.
Hraunið var orðið 1,2 km2 og rúmmál þess 12,4 milljón rúmmetrar. Stækkun hraunsins á þessu tímabili var einkum til austurs. Í Meradölum hefur hraunjaðarinn færst fram um 200 m á síðustu fimm dögum. Framgangur hraunsins til suðurs er því nú mjög hægur.
Mælingarnar staðfesta hægt minnkandi hraunrennsli með tíma.
Hraunið er nú orðið aðeins stærra en það sem myndaðist í ágúst í fyrra og rúmmálið aðeins meira en kom upp á þeim 18 dögum sem það gos varði. Í samanburði við gosið 2021, er magnið ennþá aðeins 8% af því sem þá kom upp á hálfu ári. Þessir fyrstu 13 dagar hafa verið mun kröftugri en var fyrstu vikur gossins 2021.
Mælingar á efnasamsetningu
Búið er að efnagreina sýni frá þremur dögum (10., 13. og 15. júlí). Engar breytingar hafa orðið á efnasamsetningu hrauns frá því gos hófst við Litla Hrút 10. júlí og hraunið sem fyrr af svipaðri gerð og hraunið sem var einkennandi fyrir gosið 2021 sem og í ágúst í fyrra.
Skipulögð sýnataka á vegum Jarðvísindastofunar HÍ mun halda áfram og hraunsýni verða efnagreind reglulega.