Image
geldingadalir-grof_2021-04-18

Mælingar á hraunflæði 

Nýjustu gögn um stærðir hrauns og hraunrennsli eru byggðar á flugi frá í gær.  Þá voru teknar loftmyndir úr flugvél Garðaflugs með Hasselblad myndavél Náttúrufræðistofnunar og unnin eftir þeim landlíkön af hrauninu í og umhverfis Geldingadali.

Niðurstöðurnar eru að heildarrennsli frá öllum gígum á sex daga tímabili, 12.-18. apríl hafi að meðalatali verið tæpir 8 m3/s.  Þetta er nokkur aukning frá meðalrennslinu í gosinu og staðfesting á því að samhliða opnun fleiri gíga í síðustu viku hefur afl gossins aukist nokkuð, Flatarmál hrauns er orðið 0,9 km2 og heildarrúmmál er nú rúmlega 14 millj. rúmmetrar.   

Vinna við úrvinnslu gagna varðandi jarðefnafræði og gas stendur yfir og verða línuritin uppfærð um leið og henni er lokið.

 
Hraunrennsli í samanburði við önnur gos (skrifað 19. apríl)  

Gosið hefur nú staðið í einn mánuð.  Meðalhraunrennslið fyrstu 30 dagana er 5,6 m3/s.  Í samanburði við flest önnur gos er rennslið tiltölulega stöðugt.   

Mælingarnar á hrauninu sýna nú að nokkur aukning hefur orðið síðustu 1-2 vikur.  Meðalrennslið fyrstu 17 dagana var 4,5-5 m3/s, en síðustu 13 daga er það nálægt 7 m3/s.    

Samanburður við önnur gos sýnir að þrátt fyrir aukninguna er rennslið nú aðeins um helmingur þess sem kom að meðaltali upp fyrstu 10 dagana á Fimmvörðuhálsi vorið 2010, sem var þó lítið gos.  Samanburður við Holuhraun sýnir að rennslið nú er 6-7% af meðalhraunrennsli þá sex mánuði sem það gos stóð.  Rennslið er svipað og var lengst af í Surtsey eftir að hraungos hófst þar í apríl 1964 til gosloka í júní 1967.    

Ekki er hægt að segja um nú hve lengi gosið muni standa, en þróun hraunrennslis með tíma mun gefa vísbendingar þegar fram í sækir.   
 

Um kortlagningu hraunsins:

Fjórar mismunandi aðferðir hafa verið notaðar til að kortleggja hraunið:

  1. Myndir teknar lóðrétt niður á hraunið og síðan unnið landlíkan úr myndunum. 

  2. Mælingar úr Pléiades gervitungli frönsku geimvísindastofnunarinnar.  Tunglið fer yfir a.m.k. einu sinni á dag en nær ekki myndum ef skýjahula þekur svæðið.

  3. Mælingar úr mælingflugvél Ísavia, TF-FMS, en hún er búin kerfi sem tengir saman GPS og flughæðarmæli.  Kerfið er hugsað fyrir mælingar á yfirborði jökla en getur nýst í verkefni eins og þetta.

  4. Ein mæling var gerð laugardaginn 20. mars með nákæmum leysiskanna (Reigl) sem er m.a. notaður til að kortleggja snjóflóðahlíðar, skriður o.s.frv.

Rúmmál hraunins er fengið með því að draga eitt landlíkan frá öðru. Hæðir eru skorðaðar út frá mælingum sem gerðar voru 7. mars og þekja stórt svæði í og við Fagradalsfjall.  Þessar mælingar eru festar við nýlegt nákvæmt landlíkan sem unnið hefur verið af öllu landinu (ÍslandsDEM, sjá vef Landmælinga Íslands).  Nákvæmni landlíkana er á bilinu 0,2-1.0 m í hæð, mest er nákvæmnin í lóðréttum myndum sem teknar eru með Hasselblad myndavél Náttúrufræðistofnunar og gervitunglakortum frá Pléiades.  Samræmi milli mismunandi aðferða er góð.

Vinna við mælingar og úrvinnslu

Kortlagning hraunsins er samstarfsverkefni margra aðila:  Hér á landi eru það Jarðvísindastofnun Háskólans, Landmælingar Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Veðurstofan, Ísavia og Almannavarnar auk þess sem Landsvirkjun tók þátt í mælingunni með leysiskannanum.  Myndir hafa verið teknar úr TF-KLO frá Flugfélagi Austurlands og þyrlu Landhelgisgæslunnar.  Franskt samstarfsfólk kemur líka að málinu því aðgangur að Pléiades gervitunglinu hefur fengist gegnum CIEST2, franskt rannsóknaverkefni.  Að vinnunni kemur allstór hópur sérfræðinga á stofnunum, tæknifólk á tilraunastofum og nýdoktorar við Jarðvísindastofnun.

Texti: Magnús Tumi Guðmundsson, Sæmundur Ari Halldórsson og Joaquin M. Belart