Einstakt kalt hafsvæði suður af Íslandi virðist tengjast veikari hringrás í hafinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem vísindamenn á Íslandi tóku þátt í. Hún rennir frekari stoðum undir að svonefnd veltihringrás Atlantshafsins veikist.

Nánari umfjöllun um greinina má finna á vef Vísis (https://www.visir.is/g/20262889911d/tengja-kuldapollinn-vid-island-vid-veikari-amoc)

Ángel Ruiz-Angulo (t.h.) og Halldór Björnsson (t.v.)

Ángel Ruiz-Angulo (t.h.) og Halldór Björnsson (t.v.) eru meðhöfundar að grein sem færir rök fyrir því að kuldapollurinn svonefndi sunnan við Ísland (bláa svæðið á myndinni) sé tilkominn vegna breytinga í hafinu sjálfu en ekki fyrir tilstuðlan andrúmsloftsins.

Share