
1.ágúst 2023
Hér eru settar fram nýjar upplýsingar um hraunflæði, efnasamsetningu kvikunnar og líklega framvindu.
Mælingar á hraunflæði
Síðdegs Í gær, 31. júlí, var flogið loftmyndaflug yfir hraunið við Litla-Hrút.
Myndirnar náðust úr TF-CAD um kl. 17 í gær. Náttúrufræðistofnun vann landlíkan úr myndunum. Mælingarnar sýna að meðalhraunrennsli síðustu átta daga (23.-31. júlí) var um 5,0 m3/s.
Hraunið var orðið 1,5 km2 og rúmmál þess 15,9 milljón rúmmetrar. Stækkun hraunsins síðustu viku var ekki mikil, en þó einkum austan til auk þess sem jaðarinn gekk fram um 200-300 m í Meradölum. Gosið nú er orðið nokkru stærra en það sem varð í ágúst í fyrra, en í samanburði við gosið 2021, er þetta hraun ennþá aðeins rúmlega 10% af því sem kom upp þá.
Mælingarnar staðfesta að hraunrennslið fer stöðugt minnkandi og í ljósi þess að meðalrennslið á við um átta daga tímabil, má reikna með að það sé nú, þegar þetta er skrifað, aðeins 3-4 m3/s.
Mælingar á efnasamsetningu
Efnagreind hafa verið sýni frá fjórum dögum til viðbótar við fyrri mælingar sem birtar hafa verið hér á síðunni (17., 19., 24. og 28 júlí). Engar marktækar breytingar hafa orðið á efnasamsetningu hraunsins frá því gos hófst við Litla Hrút 10. júlí. Hraunkvikan líkist mjög þeirri bráð sem gaus í Meradölum í fyrra en er ólík þeirri sem kom upp fyrstu mánuðina í Geldingadölum 2021.
Minnkandi rennsli á einsleitri kviku, líkt og nú er tilfellið við Litla-Hrút, er hægt að skýra með tæmingu á einangruðum kvikugeymi sem ekki endurhleðst af kviku úr möttli. Því er gosið í ár mjög ólíkt 2021 gosinu þegar kvikan streymdi beint úr möttli til yfirborðs og kvikuframleiðnin jókst eftir því sem leið á það gos. Þessar niðurstöður geta því bent til þess að goslok séu í nánd.
Skipulögð sýnataka á vegum Jarðvísindastofunar HÍ mun halda áfram og hraunsýni verða efnagreind reglulega.